| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1595 (MDXCV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- Annar morðbréfabæklingur Guðbrands Þorlákssonar kom út.
- Brostrup Giedde varð hirðstjóri á Íslandi.
- Guðmundur Einarsson varð skólameistari í Hólaskóla.
- Gísli Einarsson, bróðir Odds biskups, varð skólameistari í Skálholtsskóla en þótti engan veginn hæfur til starfsins.
Fædd
- Magnús Björnsson, lögmaður norðan og vestan (d. 1662).
Dáin
- Sigurður Jónsson, prestur á Grenjaðarstað (f. um 1520).
Erlendis
- 16. janúar - Mehmed 3. varð soldán í Tyrkjaveldi.
- 17. janúar - Frönsku trúarbragðastríðin: Frakklandskonungur lýsti stríði á hendur Spáni og réðst inn í Spænsku Niðurlönd eða núverandi Belgíu.
- 30. janúar - Leikrit Shakespeares, Rómeó og Júlía, flutt í fyrsta skipti.
- 18. maí - Rússland og Svíþjóð sömdu frið í stríði sem hófst 1590.
- 9. júní - Hinrik 4. Frakkakonungur vann sigur á Spánverjum í orrustunni við Fontaine-Française en var nær fallinn í valinn vegna fífldirfsku sinnar.
- 12. júlí - Alvaro de Mendaña de Neyra fann Marquesas-eyjar í Pólýnesíu.
- 2. september - Áttatíu ára stríðið: Spænskur her vann sigur á her Hollendinga og Englendinga við ána Lippe í Þýskalandi.
- 22. nóvember - Sjóorrusta um San Juan í Púertó Ríkó. Enskur floti, leiddur af Francis Drake gerði innrás í spænsku nýlenduna. Flotinn hörfar eftir þrjá daga og missi 8 skipa og hélt til innrásar í Panama.
- Þrælauppreisn varð í São Tomé.
Fædd
- 9. júní - Vladislás 4., konungur Póllands (d. 1648).
- 27. desember - Bohdan Khmelnytskyj, leiðtogi úkraínskra Kósakka (d. 1657).